Sigríður Ósk kemur reglulega fram í óperuuppfærslum, óratóríum og á ljóðatónleikum hérlendis og erlendis.
Sigríður Ósk Kristjánsdóttir mezzósópran lauk Artist Diploma og meistaragráðu frá hinum virta Royal College of Music í London, ásamt því að komast inn í og ljúka hinu eftirsótta RCM Opera Studio. Áður lauk hún söng- og píanókennaranámi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík. Sigríður syngur reglulega í óperum, óratoríum og á ljóðatónleikum bæði hérlendis og erlendis.
Sigríður hefur sungið óperuhlutverk m.a. með Glyndebourne Óperunni, English National Opera, English Touring Opera, Iford Opera, Classical Opera og Íslensku óperunni þar sem hún söng m.a. hlutverk Rosinu í Rakaranum, Floru Bervoix í La traviata og þriðju dömu í Töfraflautunni. Hún hefur verið einsöngvari m.a. með Mótettukórnum, Dómkórnum, Kór Langholtskirkju, Óperukórnum í Reykjavík, Karlakór Reykjavíkur og Fóstbræðrum.
Hún hefur sungið í virtum tónleikasölum eins og Royal Albert Hall, Kings Place, Handel House, St Martin in the Fields og Cadogan Hall í London en þar söng hún ásamt Dame Emma Kirkby og var tónleikunum útvarpað á Classic FM. Með Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur Sigríður Ósk sungið í Klassíkinni okkar 2017 og 2018 og í 9. sinfóníu Beethovens, Óðinum til gleðinnar. Sigríður kom fram með Symphonia Angelica á Listahátíð í Reykjavík 2016 og á norrænu tónleikunum Concerto Grosso – Viking Barokk sem fóru fram í helstu tónleikasölum Norðurlandanna. Sigríður Ósk söng fyrir Íslands hönd í dómkirkjunni í Strassborg á opnunarhátíð Strasbourg Christmas Market.
Sigríður kemur reglulega fram í ýmsum tónleikaröðum; sumarið 2024 kom hún fram á Berjadögum og hátíðartónleikum Skálholtshátíðar. Sigríður stendur árlega fyrir jólatónleikunum Sígildum jólum. Söng Sigríðar má heyra m.a. á geisladiskunum Engel Lund's Book of Folk Songs (Nimbus Records) og Með vorið í höndunum, sönglögum Jónasar Ingimundarsonar. Sigríður var tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna árin 2016, 2017, 2018 og 2021.
Sigríður Ósk appears regularly in opera productions, oratorio and song recitals in Iceland and abroad.
Sigríður Ósk Kristjánsdóttir, mezzo-soprano, completed vocal and piano teacher training at the Reykjavík College of Music and studied further at the prestigious Royal College of Music in London, graduating with an Artist Diploma and a master's degree in Advanced Vocal Performance. She was also accepted into and completed the highly sought-after RCM Opera Studio. Sigríður performs regularly in operas, oratorios and lieder concerts both in Iceland and abroad.
She has sung opera roles with Glyndebourne Opera, English National Opera, English Touring Opera, Iford Opera, Classical Opera and the Icelandic Opera, where she performed roles such as Rosina in The Barber of Seville, Flora Bervoix in La traviata and the Third Lady in The Magic Flute. In Iceland she has been a soloist with the Motet Choir, the Cathedral Choir, the Langholtskirkja Choir, the Reykjavík Opera Choir, the Reykjavík Male Choir and Fóstbræður.
She has performed in renowned concert halls such as Royal Albert Hall, Kings Place, Handel House, St Martin in the Fields and Cadogan Hall in London, where she sang alongside Dame Emma Kirkby in a concert broadcast on Classic FM. With the Iceland Symphony Orchestra, Sigríður Ósk has sung in Klassíkin okkar, broadcast live on national television in 2017 and 2018, and in Beethoven's 9th Symphony, Ode to Joy. She performed with Symphonia Angelica at the Reykjavík Arts Festival in 2016 and in the Nordic concert series Concerto Grosso – Viking Baroque, held in major concert halls across the Nordic countries. Sigríður Ósk sang on behalf of Iceland at Strasbourg Cathedral during the opening ceremony of the Strasbourg Christmas Market.
She regularly performs in various concert series; in the summer of 2024 she appeared at Berjadagar (Berry Days) and the festival concerts of the Skálholt Festival. Sigríður annually organises the Christmas concert Sígild jól (Classical Christmas). Her singing can be heard on CDs such as Engel Lund's Book of Folk Songs (Nimbus Records) and Með vorið í höndunum (With Spring in Hand), songs by Jónas Ingimundarson. Sigríður was nominated for the Icelandic Music Awards in 2016, 2017, 2018 and 2021.